Invictus
Kallar og Mellur
22.04.2008 10:04:35 / drago

Ný/önnur síða

Jamm, þið lásuð rétt..
Maður þarf stundum bara að breyta um umhverfi.. og ég hef ákveðið að nýja umhverfið mitt verði bloggar.is

Ég ætla nú ekki alveg að jarða þessa síðu, aldrei að vita nema ég hendi inn eins og einni og einni færslu hérna við og við, eða setji alltaf bara sömu færslur og verða á hinni, og svo kannski gerist ekkert hérna, og bara á bloggar.is...

En allavega þá er nýja síðan http://www.masch.bloggar.is

Endilega kíkiði, og látið mig vita ykkar skoðun á hlutunum


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 16:31:53 / drago

Þetta er bara skuggalegt

Findu þitt stjörnumerki, og segðu mér í kommenti hvort það passi...

ARIES - The Aggressive

Outgoing. Lovable. Spontaneous. Not one to mess with. Funny. Excellent kisser EXTREMELY adorable. Loves relationships, and family is very important to an aries. Aries are known for being generous and giving. Addictive. Loud. Always has the need to be 'Right'. Aries will argue to prove their point for hours and hours. Aries are some of the most wonderful people in the world. 16 years of bad luck if you do not forward.




TAURUS - The Tramp

Aggressive. Loves being in long relationships. Likes to give a good fight.
Fight for what they want. Can be annoying at times, but for the love of attention. Extremely outgoing. Loves to help people in times of need. Good kisser. Good personality. Stubborn. A caring person. They can be self centered and if they want something they will do anything to get it. They love to sleep and can be lazy. One of a kind. Not one to mess with. Are the most attractive people on earth! 15 years of bad luck if you do not forward.




GEMINI - The Twin

Nice. Love is one of a kind. Great listeners Very Good at confusing people... Lover not a fighter, but will still knock you out. Gemini's will not take any crap from anyone. Gemini's like to tell people what they should do and get offended easily. They are great at losing things and are forgetful. Gemini's can be very sarcastic and childish at times, and are very nosey.
Trustworthy. Always happy. VERY Loud. Talkative. Outgoing VERY FORGIVING. Loves to make out. Has a beautiful smile. Generous. Strong. THE MOST IRRESISTIBLE. 9 years of bad luck if you do not forward.




CANCER - The Beauty

MOST AMAZING KISSER. Very high appeal. A Cancer's Love is one of a kind. Very romantic. Most caring person you will ever meet in your life. Entirely creative Person, most's are artists and insane respectfully speaking. They perfected sex and do it often. Extremely random. An Ultimate Freak. Extremely funny and is usually the life of the party. Most cancers will take you under their wing and into their hearts where you will remain forever. Cancers make love with a passion beyond compare
Spontaneous. Not a Fighter, But will kick your ass good if it comes down to it. Someone you should hold on to! 12 years of bad luck if you do not forward.




LEO - The Lion

Great talker. Attractive and passionate. Laid back. Usually happy, but when unhappy tend to be grouchy and childish. A leo's problem becomes everyone's problem. Most Leos are very predictable and tend to be monotonous. Knows how to have fun. Is really good at almost anything. Great kisser. Very predictable. Outgoing. Down to earth. Addictive. Attractive. Loud. Loves being in long relationships. Talkative. Not one to mess with. Rare to find. Good when found. 7 years of bad luck if you do not forward.




VIRGO - The One that Waits

Dominant in relationships. Someone loves them right now. Always wants the last word. Caring. Smart. Loud. Loyal. Easy to talk to. Everything you ever wanted. Easy to please. A pushover. Loves to gamble and take chances. Needs to have the last say in everything. They think they know everything and usually do. Respectful to others but you will quickly lose their respect if you do something untrustworthy towards them and never regain respect. The do not forgive and never forgetThe one and only. 7 years of bad luck if you do not forward.




LIBRA - The Lame One

Nice to everyone they meet. Their Love is one of a kind. Silly, fun and sweet. Have own unique appeal. Most caring person you will ever meet! However, not the kind of person you want to mess with... you might end up crying... Libras can cause as much havoc as they can prevent. faithful friends to the end. Can hold a grudge for years. Libras are someone you want on your side. Usually great at sports and are extreme sports fanatics. Kinda dumb at times. 9 years of bad luck if you do not forward.




SCORPIO - The Addict

EXTREMELY adorable. Loves to joke. Very Good sense of humor. Will try almost anything once. Loves to be pampered. Energetic. Predictable. GREAT kisser. Always get what they want. Attractive. Loves being in long relationships. Talkative. Loves to party but at times to the extreme. Loves the smell and feel of money and is good at making it but just as good at spending it! Very protective over loved ones. HARD workers. Can be a good friend but if is disrespected by a friend, the friendship will end. Romantic. Caring. 4 years of bad luck if you do not forward.




SAGITTARIUS - The Promiscuous One

Spontaneous. High appeal. Rare to find. Great when found. Loves being in long relationships. So much love to give. A loner most of the time. Loses patience easily and will not take crap. If in a bad mood stay FAR away. Gets offended easily and remembers the offense forever. Loves deeply but at times will not show it feels it is a sign of weakness. Has many fears but will not show it. VERY private person. Defends loved ones will all their abilities. Can be childish often. Not one to mess with. Very pretty. Very romantic. Nice to everyone they meet. Their Love is one of a kind. Silly, fun and sweet. Have own unique appeal. Most caring person you will ever meet! Amazing in bed..!!! Not the kind of person you want to mess with- you might end up crying. 4 years of bad luck if you do not forward.




CAPRICORN - The Passionate Lover

Love to bust. Nice. Sassy. Intelligent. Sexy. Grouchy at times and annoying to some. Lazy and love to take it easy. But when they find a job or something they like to do they put their all into it. Proud, understanding and sweet.
Irresistible. Loves being in long relationships. Great talker. Always
gets what he or she wants. Cool. Loves to win against other signs especially Gemini's in sports. Likes to cook but would rather go out to eat at good restaurants.
Extremely fun. Loves to joke. Smart. 24 years of bad luck if you do not forward.




AQUARIUS - Does It In The Water

Trustworthy. Attractive. Great kisser. One of a kind, loves being in
long-term relationships. Can be clumbsy at times but tries hard. Will take on any project. Proud of themselves in whatever they do. Messy, and unorganized. Procrastinators. Great lovers, when their not sleeping. Extreme thinkers. Loves their pets usually more then their familiy. Can be VERY irritating to others when they try to explain or tell a story. Unpredictable. Will exceed your expectations. Not a Fighter, But will Knock your lights out. 2 years of bad luck if you do not forward




PISCES - The Partner for Life

Caring and kind. Smart. Center of attention. Messy at times and irresponsible! Smart but lazy. High appeal. Has the last word. Good to find, hard to keep. Passionate, wonderful lovers. Fun to be around. Too trusting at times and gets hurt easily. Lover of animals. VERY caring, make wonderful nurses or doctors. They always try to do the right thing sometimes get the short end of the stick. They sometimes et used by others and hurt because of their trusting. Extremely weird but in a good way. Good Sense of Humor!!! Thoughtful. Always gets what he or she wants. Loves to joke. Very popular. Silly, fun and sweet. Good friend to other but need to be choosy on who they allow their friends to be. 5 years of bad luck if you do not forward.


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 15:46:16 / drago

Persónulegt blogg frá vígðum Leiknismanni.

Jæja, þetta verður mitt síðasta blogg, allavega svona eitthvað persónulega blogg.. Kannski maður setji inn eitthvað þegar mér dettur í hug, og leiðist, en það kemur bara í ljós.

Aðeins 2 manneskjur kommentuðu, sem jaaa... Ég er eiginlega hálfsvekktur með.. En ég meina, ég skil svosem alveg að það lesi þetta enginn.. Bloggunum hafa farið fækkandi, og í takt við það, hafa gæðin á þeim kannski lækkað, en hver veit nema maður rísi upp og verði massabloggari bráðlega aftur.. Erfitt samt þegar maður er ekki með netið.. En að Spánarferðinni..

Við mættum hressir og kátir kl 06:00 laugardaginn 29. mars í Leikniskofann, dressaðir upp í glænýjum Leiknispeysum, alltof heitar fyrir Utanlandsferð, en henta vel á Íslandi býst ég við.. Daginn áður höfðum við fengið æfingafatnað, og þessar peysur afhent frá stjórnarmönnum við mikinn fagnað. Vorum við mættir í leifstöð rétt um 7, þar sem við eyddum góðum 2 tímum.. Fórum í loftið um 9 leytið..

Þegar við lentum í Portúgal tók við bið eftir töskum, og þurftum svo að fá bílaleigubíla sem myndu vera fararskjóti okkar í ferðinni. Ég lenti í bíl með Val markmanni, Fúsa fyrirliða og Þór sprelligosa... Góður hópur, og sennilega skemmtilegasti bíllinn að mínu mati..

Svo þegar við komum loksins á hótelið, þá voru menn frekar þreyttir eftir flugið, svo að engin æfing var þann daginn, heldur fórum við bara í það að kynna okkur staðinn, fá okkur að borða, og koma okkur fyrir.. Ég var í herbergi með honum Þór, og fengum við minnsta herbergið á hótelinu.. Síðasta daginn komumst við að því að þetta var víst kústaskápur með útsýni.. En þetta fylgir víst að vera herbergisfélagi Þórs.. Hann fær alltaf minnsta herbergið..

Sunnudagurinn kom með pompi og prakt, og vöknuðum við hressir og kátir og mættum í morgunmat.. Þór var ákveðinn að taka mig í gegn með matarræðið, og það tókst mestmegnis af ferðinni.. Þangað til að hann féll sjálfur fyrir freistingunum.. 2 æfingar voru á sunnudeginum, og voru þær í toppaðstæðum.. Frábært veður, varla ský á himni, og toppgras...Eftir hverja æfingu var okkur ráðlagt af sjúkraþjálfaranum okkar, henni Unni, að skella okkur í ÍSKALDA laugina í 5-10 min. og menn fóru misvel eftir því.. Ég gerði það hinsvegar oftast... Milli æfinga lágu menn annaðhvort á sundlaugarbakkanum, spiluðu Pro Evulution Soccer, eða spiluðu spil...

Mánudagurinn var svipaður sunnudeginum.. tvær æfingar, sundlaug, sólbað, pro...
Á þriðjudeginum voru menn orðnir frekar slappir í kroppnum, svo að það var bara ein æfing þann daginn.. Skutluðumst í moll, og fengum okkur að borða, þar sem takmarkað magn af góðum verslunum var í þessu molli...Svo horfðum við á Man. Utd. rústa Roma enn og aftur...
Miðvikudagsæfingin fór í taktíska æfingu, og hornspyrnur.. Leikur um kvöldið, og við biðum spenntir eftir honum.. Spilað var gegn FC Ayamonte, stórlið í 4 efstu deild á spáni.. Á GEGGJUÐUM velli.. reyndar soldið harður, en þvílíkt gras, og við erum að tala um bara stadium! ótrúleg upplifun að spila þarna :) Og ég átti sæmilegann leik, ekki alsáttur samt.. Við töpuðum 2-0, en vorum að klúðra þvílíkum færum..

Svo var Arsenal um kvöldið, og leikmenn veðjuðu á úrslit.. Ég rétt missti af pottinum sem var eitthvað um 100 evrur.. Fimmtudag var létt morgunæfing, og svo taktík um kvöldið.. Lékum gegn Víði á föstudagsmorgun, og töpuðum þar 3-1, og enginn annar en Sigþór Snorrason, títtnefndur, skoraði markið, stöngin inn, eftir stutt horn.. Þokkalegt mark, en lélegur leikur að okkar hálfu..Var ég þarna að spila á móti nokkrum strákum sem ég þekki af suðurnesjunum, og var það gaman :)

Seinna um daginn vorum við nýliðarnir busaðir.. og haldið ykkur fast.. Ef þið eruð yngri en 16, hættið að lesa núna!!!
Við vorum settir allir í herbergi, afhent eina bjórdós á mann. Og svo var okkur sagt að fara úr öllum fötunum, og klæðast því sem okkur yrði rétt... Svo vorum við látnir taka nokkur tequilastaup, vodkastaup, á meðan við gerðum allskyns kúnstir sem verður ekki farið nánar útí hér.. Við vorum látnir borða hákarl, synda, bæði í laug og sjónum, flengdir, og leika okkur saman(fegraði þetta aðeins), og lékum okkur lítillega með túrtappa.. Mikið gaman, mikið glens..

En svo sungum við leiknissöngum, og vorum baðaðir í kampavíni og vorum þar með vígðir inní liðið.. :)

Svo fórum við og fengum okkur að borða, ég og Aaron skelltum okkur á diskó, þar sem við vorum einu mennirnir á gólfinu, og á þessum klúbb.. og Laugardagurinn var svo þunnur.. ALL day long..!!!

Komum svo loksins heim, og það var yyyyndisleg tilfinning..


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:08:57 / drago

Spánn beibí, yeahh

Vildi bara leyfa ykkur ad ofunda mig adeins.. Thar sem ég er staddur á Spáni, í klikkudu vedri, og geggjudum adstaedum...

Ég stefni a ad koma med rosa blogg thegar eg kem heim, en bara ef eg fae meira en 10 komment fyrir sunnudag... Ef ekki, thá held ég ad eg se bara haettur... Ciao!

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 16:43:01 / drago

Fantagott

Hvert ákvað það að hafa fantaflöskurnar svona hrikalega asnalegar? Það er ekki hægt að þamba úr þessum flöskum, því þær beyglast ekki, og flöskuhálsinn er einhverstaðar á miðri flöskunni! Hvað er það! Mig langar að hitta mann sem er með háls á maganum! Það væri asnalegur maður!

Að öðru, vestur á fimmtudaginn.. Hvenar á fimmt. og hvernig er óráðið.. Það er leikur við FH kl 12 á fimmtudag, sem mig langar ótrúlega að spila, en farið mitt fer milli 6 og 7 á fimmtudagsmorgun.. Og ég verð að ákveða hvort ég sleppi leiknum eða sleppi farinu... Veeeeesen..
Hvað finnst ykkur að ég eigi að gera? KOMMENT

Svo kem ég aftur suður 24. snemma um morguninn til að spila æfingaleik við ÍH sem gamla liðið mitt tapaði 4-1 fyrir á föstudaginn.. Svo 29. mars er það Spánn beibí! YEAHH :) bless í bili.. vil komment takk


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 17:31:59 / drago

Guðmunda Líf

Litla systir mín hún Guðmunda skrifaði í gestabókina og bað mig um að setja sig í tengla.. Ég gerði það auðvitað, því hún er svo mikil rúsína.
Guðmunda Líf

Að öðru... Á morgun er æfingaleikur á móti Aftureldingu, sem er bara fínt, alltaf gaman að spila, en þessi leikur verður háður undir beru lofti kl hálf 11 um morguninn.. Það er ég ekkert voðalega mikið að fíla :)

En ég þarf klárlega að taka mig á, því mér finnst frammistaða mín á æfingum hafa farið soldið niður, sem er ömurlegt, því ég veit að ég get miklu betur, og ég er búinn að sýna það að ég get betur...

Svo annað kvöld er árshátíð Símans, þar sem Páll Óskar leikur lög eftir matinn.. Hlakka mikið til..
Fyrsta djammið mitt með Dísu, og fyrsta djammið árið 2008.. Að undanskildnu áramótadjamminu.. Vonandi endar það ekki með ósköpum :)
Og ég er búinn að ákveða að ég ætla ekki í jakkafötum, heldur ætla ég með stæl.. Hver veit nema Dísa smelli af eins og nokkrum myndum og þið fáið að sjá flottheitin..
En allavega.. Páskarnir nálgast og er ég að koma vestur, og fer svo stuttu eftir þá ferð til Spánar með Leikni, þar sem ég verð vígður opinberlega inn í liðið.. Hlakka mikið til þeirrar ferðar!

Nóg í bili..
Sýniði nú smá frumkvæði og kommentið :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 11:00:44 / drago

Nýr vinur, Dólgslæti og dans

Ég var að bæta við einum ungum, saklausum, rauðhærðum, gamalli sál í "Vinir mínir", getið skoðað hann þarna vinstra megin...

Ég var að spila fótboltaleik í gær, gegn Víking, og fyrsti sigurleikur minn með Leikni er kominn í hús, og héreftir liggur leiðin upp, eða það vona ég... Ég kom inná, og spilaði sæmilega..
Ekkert meira um það að segja...
Páskar á næsta leyti, og ég vonast eftir að komast vestur :) Vonum það besta... Ekkert orðið staðfest enn allavega...
Svo fljótlega eftir páska fer ég í utanlandsferð með Leiknir.. Þ.e.a.s. ef Guð ákveður að láta mig erfa skyndilegann pening... Því ég þarf að borga litlar 68. þúsund krónur á einu bretti ef ég ætla að komast út... Enn og aftur, vona það besta.. Ef einhver vill lána mér, þá má sá hinn sami hafa samband í síma 8677772...

Sigurgeir kom í heimsókn um daginn, og Þröstur líka.. þeir voru með Dólgslæti.. Gulli kom líka en hann var ekki dólgur í þetta skiptið.. Sigurgeir færði mér gítar, afmælisgjöf frá fjölskyldunni minni.. Ég er strax byrjaður að reyna að læra á hann.. Það gengur erfiðlega..

Að vera til staðar
Ég var að heyra nýtt lag... Það heitir Will You Be There með Richard Harris... Rosalega fallegt lag, og lét mig enn og aftur fara að pæla.. Hversu mikið það skiptir máli, eitt og sér, að vera til staðar fyrir vini manns og ættingja.. Það eitt krefst sama og einskis erfiðis, og yfirleitt lætur það manni líða vel í endann.. Ég hef alltaf reynt að vera til staðar fyrir vini mína... Stundum hef ég klúðrað málunum, en oftar en ekki sit ég eftir með þá sælutilfinningu sem fylgir því að hjálpa fólki sem manni þykir vænt um.. Mér finnst það skipta miklu máli.. Þó það sé ekki nema að vera öxl til að gráta á..

Að öðru og kannski líflegri hlut.. Þá var ég að finna myndband á youtube, sem er alveg snilld..
Mouth að dansa
Horfið á þetta...  Þetta er tær snilld og fær mig alltaf til að brosa..
Afhverju lendi ég aldrei í balli með svona lögum og svona dansi.. Kannski afþví að ég kann ekki að dansa svona, og ef ég kynni það, hverjar væru líkurnar að þegar svona lag myndi koma að ég myndi vera að dansa við einhvern sem kynni dansinn líka, og væri með hreyfingarnar samstilltar við mínar.. Bara af tilviljun.. Spurning..

En nóg í bili.. Ég vil lágmark 5 komment.. Annars hætti ég þessu :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 16:48:47 / drago

90 mínútur og lurkum laminn

Jæja, þá kemur enn eitt fótboltabloggið.. Við vorum að spila á móti úrvalsdeildarliði Fjölnis í gær, töpuðum 2-0, en ég verð þó að segja að það hafi verið fremur ósanngjarnt.. Við stóðum alveg fyllilega í þeim í 80 mín. svo kom andartakseinbeitingarleysi í okkur, og við fengum á okkur mark.. Þá freistumst við að fara framar og jafna, og þá setja þeir annað mark..

Frekar svekkjandi.. en ég fékk að spila alveg 90 mín. ooog ég er alveg búinn á því.. Eeen ég má ekkert vera að því að vera þreyttur því við eigum leik gegn Íslandsmeisturum Vals á sunnudaginn.. Og eftir 4-0 slátrun gegn KR, þá eiga þeir eftir að vilja sanna sig.. Þannig að það verður hörkuleikur...

Það kom viðtal við mig á Leiknir.com í dag.. Og þar talaði ég heldur betur af mér þegar ég sagði að þeir fyrir vestan hefðu sagst ætla að bjóða mér gull og græna skóga kæmi ég vestur.. Þetta var virkilega illa orðað, og kom í kjölfar að ég sagði að félagið fyrir vestan hefði viljað halda mér..
Ég vil leiðrétta þetta hérmeð, og segja að þeir sem ætluðu að bjóða mér gull og græna skóga var ekki félagið fyrir vestan heldur strákarnir mínir, og var ég að vísa í þá þegar ég sagði þetta... En þetta kom ekki þannig út afþví hversu illa ég orðaði þetta.. En ég var nú bara að reyna að koma með aðeins lengri svör, og þetta var útkoman..


Aaað öðru... Undanfarið hef ég fundið fyrir smá heimþrá.. Ég sakna hótel Mömmu, ég sakna strákanna minna, systra minna, bróðir míns, ísafjarðarlognsins, gervigrasvallarins og margt margt fleira.. Alveg ömurlegt og þetta er búið að draga mig töluvert niður.. Aldrei bjóst ég við því að fá slíka heimþrá, því ég hef oft búið annarstaðar en á ísafirði, og þá voru hlutirnir ekki að ganga eins vel og núna, en hef samt aldrei fundið fyrir slíkri heimþrá...

Gaman af þessu...

Allavega.. Nóg í bili..
Bless

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 16:55:10 / drago

Breiðholtsstolt

Ég hélt aldrei að ég myndi upplifa einhvern svona ríg eins og var alltaf í gamla daga þegar maður mætti umfb.. En ég lenti í mínum fyrsta nágrannaslag með Leikni í síðustu viku, þegar við spiluðum gegn ÍR, og dagana fyrir leikinn var ég bara á fullu að peppa mig upp, ég ætlaði sko ekki að tapa þessum leik...

Við reyndar töpuðum, og ég var alveg hevý tapsár, og miklu meira en ég bjóst við.. Skrýtið...þ
Ég var í byrjunarliði og átti skítsæmilegann leik, átti eitt skot sem var næstum því mark.. Virkilega vel varið hjá markmanninum...

En jæja.. Lítið að gera í vinnunni, og ég alveg að verða búinn..

Hef voðalega lítið að segja, svo að ég býst ekki við neinum kommentum...

Hmmm... Ég ætla að reyna að koma fljótlega með eitthvað rosalegt blogg, svona djúpt..
Svona ekta All I Can Be Is Be Me blogg... Veit að margir sakna þess...

Strákar, ég sakna ykkar allra.. Sérstaklega þín Nonni! Líf mitt án þín er eins og gluggalaust heimili, dimmt og tilgangslaust!!

Bless í bili... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 16:40:16 / drago

Kafli 13 - Þröstur

Þröstur Pétursson er vinur minn.

Hann er rauðhærður, og ótrúlega gömul sál. Hann stendur yfirleitt fyrir sínu sem vinur, en á yfirleitt mjög erfitt með að standa á skoðunum sínum. Ég man þegar Þröstur kom fyrst inní líf mitt.. Hann breytti því til hins betra.. Með skoðunum sínum, fúkyrðum og kjaftbrúki.. Þröstur er með alveg rosalegt skap, maður veit aldrei hvenar hann rýkur upp úr öllu valdi, og bara lemur þig, og hreytir í þig skammyrðum. Þröstur er nýbúinn að eignast sína fyrstu kærustu... Við vinirnir erum hræddir um að missa hann í föðurhlutverkið því hann er svo gömul sál. Gengur um í afaskóm, og er gamall kall inní ungum líkama... Þröstur, við elskum þig...

Aaaað blogginu... Ég á afmæli á morgun, er búinn að fá 2 afmælisgjafir, annarsvegar frá Dísu(geggjað flottann frakka!!) og hinsvegar frá tengdó(æðislega hettupeysu)... Ég vonast eftir að fá mikið fleiri, þó ég búist kannski ekki beint við því...

Svo við ég koma hamingjuóskum til hans Benna(Freezy frænda) og Ingu.. Þau eignuðust lítið stúlkubarn á sunnudaginn.. Ég var eiginlega búinn að panta barnið á morgun, þann 31. jan... eeen svona er lífið.. Ég verð bara að vera þá uppáhaldsfrændi hennar, en ekki eiga sama afmælisdag...

Svo er ég og Dísa að fara í bústað um helgina.. Hlakka mikið til að fara bara í ALGJÖRA afslöppun... Heitur pottur, góður matur(ef matseldin okkar bregst ekki), og mögulega eitthvað sterkara en maltöl, en við sjáum til með það...

Svo í næstu viku er derbyslagur gegn ÍR... Og vááá hvað mig hlakkar til að spila þann leik, þ.e.a.s. ef ég kemst í liðið, en það verður ekki auðvelt, enda mikið af hæfileikaríkum leikmönnum í þessum Leiknishóp...

 

Jæja, nóg í bili... Ég vil fá gjafir frá ykkur öllum! Capiche! Sérstaklega þér Sigurgeir... Og Rúnar, ég vil fá eitthvað frá útlöndum!! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 15:57:54 / drago

Velkominn í Leikni..

Jæja, leikurinn er búinn... Og ekki fór hann eins vel og ég hafði vonað..

Ég var í byrjunarliði í hægri bakverði, og ég var smá stressaður að þurfa að díla við Óskar, vinstri kantmann KR-inga.. Hann sýndi snilli sína með því að sóla mig upp úr skónum á 10. mín. og kom með sendingu fyrir markið sem varnarmaður okkar setti óvart í eigið mark... Virkilega illa gert hjá mér.. En eftir þetta lá leiðin upp hjá mér.. Ég var færður á miðjuna, og þar kannaðist ég betur við mig.. Og átti bara þokkalegann leik.. Fékk líka mjög skemmtilega umsögn á www.leiknir.com:

"Sigþór lék sinn fyrsta leik í Leiknisbúningnum og eins og hjá mörgum leikmönnum liðsins þá batnaði leikur hans þegar á leið. Þegar hann færðist á miðjuna sýndi hann mjög góðan leik og lofar virkilega góðu."

Svo átti Þór félagi minn einnig mjög góðann leik á vinstri kanntinum, þrátt fyrir að hafa ekki fengið það lof sem hann á skilið á leiknissíðunni...

 Eeeen nóg um fótbolta.. Hvað er ég að segja... Maður fær aldrei nóg af fótbolta... En BÍ/Bol er að koma suður á næstu helgi, ég hlakka mikið til að hitta strákana mína... 

Ég hvet alla líka til að taka þátt í skoðannakönnuninni... Hörkukeppni þarna framundan...

Hmmm.... Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að blogga um... Ég og Dísa fórum í bíó um daginn.. Á The Mist eftir Stephen King... Mér fannst hún virkilega góð, þrátt fyrir að ég hafi búist við öðrvísi mynd... En endirinn er rosalegur.. Hef sjaldan horft á mynd þar sem endirinn kemur mér svona á óvart...

 Mig langaði líka að hrósa Rúnari smá... Hann er búinn að vera duglegastur af öllum vinum mínum að heimsækja mig... Ég veit nú ekki hversu oft hann er búinn að koma, en hann slæst við Sigurgeir um efsta sætið..  Maggi kemur í 3 sæti með 1 skipti, Tommi hefur bara komið til að fá föt, og Þröstur Pétursson hefur ALDREI komið!!!

Strákar, mér finnst þetta léleg frammistaða hjá þér, og ég vil að þetta breytist!!!

Nóg í bili.. Rúnar ég elska þig.. Sigurgeir Sveinn Gíslason, mér þykir vænt um þig og Maggi, þig líka... Þröstur... ég veit ekki hvernig ég á að tala við þig þessa dagana...

Pís át... Kóngurinn lifir 


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 13:47:25 / drago

Þú segir nokkuð, Amma þín er kokkur

Jæja, ég nenni voðalega lítið að blogga... Fer yfir bara það helsta, gef ykkur svo eitthvað til að kommenta með, og svo segjum við þetta gott, samþykkt?

Spilaði æfingaleik með Leikni síðasta miðvikudag, mér persónulega gekk vel, fannst mér, var óöruggur fyrst, kom inná í hálfleik, í hægri bakvörð, og eftir að ég náði að koma mér í smá contact, átti ég stórleik! Nei segi það kannski ekki alveg, en ég var ekki lélegur...

Svo er KR næsta föstudag, en til þess að mega spila þann leik þurfti ég að taka mjög erfiða ákvörðun.. Þ.e.a.s. ég þurfti að fá félagsskipti frá BÍ... Sumir kannski halda að sú ákvörðun hafi verið borðliggjandi, en það var það ekki fyrir mig... En ég ákvað að lokum að skipta, spila með þeim í reykjavíkurmótinu, sjá hvernig mér gengur, og svo skipti ég bara aftur vestur ef það gengur ekki.. Ég allavega verð með hreina samvisku :)

 

En að kommentadótinu... Finnst ykkur þetta eiga vel við mig?

 

VATNSBERI
Vatnsberar eru oft háir og glæsilegir, með loðnar augabrýr og óstýrilátt hár, og þeir klæðast gjarnan dýrum og nýtískulegum fötum, en yfirleitt skapa þeir sér þó eigin fatastíl. Vatnsberar eru sjálfstæðir í hugsun og fylgja ekki viðteknum skoðunum og þeir vilja einlæglega berjast gegn alls kyns óréttlæti, ekki síst félagslegu. Vatnsberinn er vingjarnlegur og opinn í framkomu og nýtur sín vel í félagslegu samhengi, bæði í stærri og minni hópum. Þeir eru ævintýragjarnir og stundum sérvitrir, eiga til bæði önuglyndi og þrjósku, ekki síst ef þeir neyðast til að verja eigin sérlyndi. Þeir eru hins vegar óþreytandi að berjast fyrir minni máttar. Vatnsberinn er frumlegur í hugsun, og velur sér gjarnan óvenjulegt starfssvið, eins og t.d. stjörnufræði, fornleifafræði eða annað vísindatengt, en þeir gætu allt eins tekið upp á því að gerast flugmenn eða skrifa vísindaskáldsögur! Þrátt fyrir mannúðlegt hjartalag er Vatnsberinn oft fjarlægur og erfitt að ná sambandi við hann, svo hann ætti að reyna að vera hlýlegri í framkomu og reyna að gefa meira af sjálfum sér.

 

KOMMENT!

Og nú vil ég sjá met.. en íhuga samt nýtt blogg þegar það eru komin 5 komment...


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 10:58:56 / drago

Valkvíði

Jæja, fyrsta bloggfærslan á árinu.. Ég hef ákveðið að minnka kommentalágmarkið í 5 komment á hverja færslu..

En að titlinum, þá held ég að ég sé virkilega haldinn valkvíða á háu stigi.. Ég virðist stundum ekki geta tekið ákvörðun án þess að fá álit a.m.k. 3 aðila...

Een núna er sá gállinn á, að ég verð að taka ákvörðun, og það væntanlega á allra næstu dögum.. Mér stendur til boða að reyna fyrir mér hjá Leikni, oog hausinn á mér segir mér að ég sé klárlega tilbúinn að láta reyna á efri deildir, een svo er þetta blessaða hjarta mitt að þvælast fyrir, og lætur það vera ótrúlega erfitt að fara frá mínu liði.. Mér er alveg sama hvað hver segir, þá held ég að ég eigi ekkert eftir að geta farið í gröfina ef ég kem þessu liði ekki upp um deild.. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að einn leikmaður getur ekki komið liði einn síns liðs upp um deild, og margir sem ég hef talað við tala um metnaðarleysi fyrir vestan.. 

En þá kemur mín hlið.. Ef allir hugsa þannig, að það er enginn metnaður hérna, eða metnaður þessa liðs samsvarar ekki því sem ég er að hugsa þannig að ég get alveg farið, þá fljótlega myndu allir sterku leikmennirnir, og þá sérstaklega þessir yngri, fara bara um leið og þeir gætu..

Hinsvegar ef reyndir leikmenn eins og ég, þessir sterku póstar, eru kyrrir í liðinu, þá eru til staðar leikmenn sem yngri og efnilegir leikmenn geta tekið til fyrirmyndar, horft upp til, lært af... Svo ég tali nú ekki um litlu krakkana í yngri flokkum félagsins..

Ég man þegar ég var bara púki, þá þekkti ég hvern einasta leikmann í mfl. Ernis, sem var þá mfl. bæjarins.. Stóri bróðir minn var hetjan mín, og ég mætti á hvern einasta heimaleik, og eins og áður sagði, þekkti ég alla leikmennina sem spiluðu með bróðir mínum... Þetta vil ég að komi aftur... Að mfl. leikmenn séu stoppaðir ef þeir eru í bænum af krökkum sem vilja spjalla... Að leikmenn meistaraflokks séu fyrirmyndir, innan vallar sem utan... Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég sjálfur er ekki fullkomin ímynd fyrir börn í íþróttum, þar sem matarræðið mitt er ekki alveg uppá 100%, en ég er að taka alvarlega til í þeim málum... Ég vil skora á aðra leikmenn meistaraflokks til að gera slíkt hið sama..

Jæja, nóg af væli.. Neiii hvernig læt ég... Þið fáið aldrei nóg af vælinu í mér, er það nokkuð? ;)

Ég kom "heim" í gær... Það voru blendnar tilfinningar sem því fylgdu... Annars vegar finnst mér fínt að fara í það að gera eitthvað á daginn.. Er búinn að rugla sólarhringnum illilega, og því hlakkar mig til að þetta fari að komast í eðlilegt horf... Een ég sakna strax strákanna minna, og mömmu, bæði Sínu mömmu og Huldu mömmu, sakna litlu systra minna, Lilju og Guðmundu, sakna allra bara... Eeen ég saknaði Dísu líka á meðan ég var fyrir vestan, svo að það virðist sem að saknaðarlaust líf sé ómögulegt fyrir mig...

Svo um daginn fékk ég þær gleðifréttir að ég er tilnefndur fyrir hönd BÍ88 í kjöri Íþróttamanns  Ísafjarðarbæjar ársins 2007.. Svo að ég fer aftur vestur um helgina til að vera viðstaddur þá athöfn.. Og ég yrði stoltasti maður í heimi ef ég ynni, en ég tel samt líklegast að einstaklingsíþróttamaður vinni þetta... Een það kemur í ljós...

Nóg af þessu væli..

Árið 2008 verður frábært... Ætla mer að komast í besta form sem ég hef nokkurtíman verið í, ætla að byrja í fjarnámi og vonandi fara í dagskóla í haust, ætla að brillera í vinnunni, og Herbalife-inu, og bara.. það á allt að ganga vel...

Endilega kommentið af ykkur rassinn, því af nógu er að taka.. Ég vil fá KOMMENT!!!! 


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 21:14:52 / drago

Jólagjafastress

Sko, ég er opinberlega búinn að gefast upp á jólagjafainnkaupum.. Ég fór í gær með Dísu í kringluna, og ég var bókstaflega með lista yfir hvaða fólk ég þyrfti að finna gjafir fyrir, en ég fann einungis hálfa gjöf... Ég var illilega ósáttur með lífið akkurat þá..

Svo fór ég í ekta strákapartý hjá Dóra og Kolbeini í Engihjalla, og þetta er sko ekta strákaíbúð.. Eeen strákapartýið var aðeins öðrvísi en það sem Dóri hafði lofað mér.. Eeen ég skemmti mér samt vel, þrátt fyrir að langa geggjað út á lífið...

Hef í rauninni ekkert að segja... Liverpool tapaði fyrir Manu í dag, frekar ósanngjarn sigur utd manna, eeen þeir skoruðu gott mark, eitthvað sem Liverpool virðist ekki geta gert á móti stóru liðunum...

Eftir minna en viku þá verð ég kominn vestur, verð þar í 11 daga, og ætla að njóta þeirra eins og ég get..

Við erum að tala um jólamat, rjómarönd, jólamót, fyllerí og vonandi einhverjar góðar gjafir...

Hlakka pínu til... Eeen svo strax eftir áramót, þá ætla ég svo innilega að verða snargeðveikur í hreyfingu.. Ætla að minnsta kosti að æfa einu sinni á dag... og koma mér í mitt form aftur.. Ég er farinn að fitna!!!

Þó það sjáist kannski ekki á mér, þá sé ég það vel.. Alveg ömurlegt... Var með á æfingu um daginn, og ég fann án djóks bumbuna hristast... Sem er ekki gott...

Hef EKKERT að segja, en var ánægður með kommentafjöldann síðast... Keep it up...

Screw you guys, i'm going home 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 17:14:30 / drago

Bloggbloggedíbloggbloggblogg

Vá hvað ég nenni þessu ekki...

Ég veit að ég gaf loforð um eitthvað rosalegt blogg, eeen í sannleika sagt þá datt ég alvarlega úr moodinu til að gera það...

Svooo að Rúnar, Þröstur og Tinna, sorry :)
Skal samt give it a shoot..

Pælingin bakvið titilinn á blogginu var að líðan mín síðan ég fór í "aðgerðina" mína er búin að rokka soldið upp og niður.. Þeir sem þekkja mig eitthvað alvarlega vita hversu stór hluti fótboltinn er í mínu lífi, og hef alltaf verið með mikla þörf fyrir líkamlega hreyfingu.. Svo þegar gjörsamlega öll hreyfing er tekin af manni vegna þessarar aðgerðar þá var ég farinn að búast við nokkuð dimmum tíma.. Sérstaklega í ljósi þess að akkurat á þeim tímapunkti sem ég þurfti að fara í aðgerðina, var ég að byrja að mæta á æfingar hjá nýju félagi..

Alltaf er það erfitt að fara á æfingar hjá nýju liði, sérstaklega ef maður þekkir engann, eeen ég þekki þarna hann Þór sem tók mig með sér á æfingu, og svo er Tommi Reynis líka leikmaður Leiknis... Een þrátt fyrir þetta, þá hef ég verið alveg furðu ákveðinn og bjartsýnn miðað við að ég hef ekkert hreyft mig í rúmlega 3 vikur...

Miklu leyti er henni Valdísi kærustunni minni að þakka, en hún hreinlega leyfir mér ekki að sökkva mér í vanlíðan... En svo fattaði ég annað, að líðan mín, miðast rosalega við það hvaða lög ég er að hlusta á, á þeim tíma...

T.d. er Remember the name með Linkin Park eitthvað sem ég hlusta mikið á, því ég hef trú á því að ég eigi eftir að verða eitthvað merkilegur, jaaa, merkilegri en ég er nú þegar ;)

Ooog í kjölfarið byrjaði ég að pæla aðeins frekar í þessu.. Þegar fólk er í ástarsorg, þá hlusta það á ákveðna tegund tónlistar, þegar fólk missir einhvern, þegar fólk er að djamma, þá breytist sú tónlist sem þú hlusta á..

Hvaða lög fá þig til að breyta gjörsamlega um hugsunarhátt? spurning

Ég hef heyrt að lagið Fix You með Coldplay sé alveg svakalegt. En það hefur ekki þau áhrif á mig eins og það hefur á marga...

Og þá er pælingaparturinn búinn

............................................................

Og að öðru, ég fór út að skokka á miðvikudaginn síðasta, sem var alveg erfitt, en samt ekkert svo, nema hvað að ég fékk sennilega mestu harðsperrur sem ég hef á ævi minni kynnst.. Eða allavega sem ég man eftir...

Er núna með krosslagða fingur uppá að ég geti verið eitthvað með á æfingu á miðvikudagskvöldið.. Ooog þá vonandi í kjölfarið fengið eitthvað að spila á móti Fjölni í næsta leik... Eeeen við sjáum bara til... Vona það besta.. Reyndar verða bara liðnar 4 vikur næsta miðvikudag, og mér var sagt að bíða í 6, eeen mér líður vel, ooog veit ég ekki betur en einhver læknir hvenar ég er tilbúinn...

Eeen allavega nóg í bili.. 10 komment takk, eruð með nóg til að kommenta um, Þröstur, ég sakna þín!!  

Og Rúnar, ég er UNHAPPY


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 54412
Könnun
Á ég að hætta?


Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 22 apríl